Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. apríl 2014 17:31
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Úrslit.net 
Lengjubikarinn: Jafntefli hjá Haukum og ÍBV - Fylkir í 8-liða úrslit
Víðir Þorvarðarson skoraði fyrir ÍBV í dag
Víðir Þorvarðarson skoraði fyrir ÍBV í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli í riðli 3 í A-deild Lengjubikarsins í dag en jafnteflið þýðir það að Fylkir tekur síðasta sætið í 8-liða úrslitum bikarsins.

Víðir Þorvarðarson kom ÍBV yfir á 60. mínútu leiksins og leit allt út fyrir að ÍBV væri á leið í 8-liða úrslit Lengjubikarsins og myndir þar með taka síðasta sætið sem var í boði fyrir liðin með besta árangurinn í þriðja sæti en Haukar eyðilögðu þær vonir.

Haukar jöfnuðu með marki undir lok leiksins og lokatölur því 1-1. Þetta þýðir það að Fylkir tekur síðasta sætið í 8-liða úrslitum.

Úrslit og markaskorarar:

Haukar 1 - 1 ÍBV
0-1 Víðir Þorvarðarson ('60 )
1-1 Kristján Ómar Björnsson ('85 )
Athugasemdir
banner
banner