Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 12. apríl 2014 16:45
Brynjar Ingi Erluson
Myndir: Heiðra þá 96 sem létust í Hillsborough-slysinu
Mynd: Getty Images
15. apríl 1989 átti sér stað skelfilegur atburður á Hillsborough-leikvanginum í Sheffield er Liverpool og Nottingham Forest léku í undanúrslitum FA-bikarsins.

Á troðfullum leikvanginum létust 96 manns en þann 15. apríl næstkomandi eru 25 ár liðin frá atburðinum.

Mörg lið hafa sent Liverpool samúðarkveðjur og falleg bréf í ljósi þess og þá hafa mörg lið heiðrað þessa 96 með öðruvísi hætti.

Fyrir leik Sheffield Wednesday og Blackburn Rovers í Championship-deildinni í dag voru lagðar rósir í 96 sæti til að heiðra þá sem létust á meðan enska knattspyrnusambandið lagði Liverpool-trefla fyrir leik Wigan og Arsenal í undanúrslitum FA-bikarsins.

Hægt er að sjá myndirnar hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner