Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 12. apríl 2014 22:34
Brynjar Ingi Erluson
Neuer ekki lengi frá - Verður með gegn Kaiserslautern
Mynd: Getty Images
Manuel Neuer, markvörður Bayern München í Þýskalandi, er ekki alvarlega meiddur eins og talið var í fyrstu en honum var skipt af velli í hálfleik gegn Borussia Dortmund í dag.

Bayern tapaði fyrir Dortmund með þremur mörkum gegn engu í dag en Neuer fór af velli í hálfleik vegna meiðsla í kálfa.

Talið var að hann myndi missa af undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu sem og undanúrslitaleiknum gegn Kaiserslautern í þýska bikarnum en hann segir að meiðslin hafi ekki verið alvarleg.

,,Ég fór af velli því við vildum ekki taka neinar áhættur. Ég get spilað gegn Kaiserslautern í bikarnum," sagði Neuer.
Athugasemdir
banner
banner