Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. apríl 2014 19:20
Brynjar Ingi Erluson
Neuer fór meiddur af velli gegn Dortmund
Manuel Neuer
Manuel Neuer
Mynd: Getty Images
Manuel Neuer, markvörður Bayern München í Þýskalandi, fór meiddur af velli er lið hans tapaði 0-3 fyrir Borussia Dortmund í dag.

Neuer, sem meiddist á kálfa í dag, var tekinn af velli í hálfleik gegn Borussia Dortmund í stöðunni 0-1.

Bayern staðfesti að meiðsli Neuer væru aftan í kálfa en Lukas Raeder tóku stöðu hans í markinu í síðari hálfleik.

Þetta gæti verið mikið vandamál fyrir lið Bayern en Raeder stóð ekki ekki neitt sérstaklega vel er hann kom inná og fékk á sig tvö mörk. Neuer gæti misst af fyrri leik liðsins gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu sem og Kaiserslautern í þýska bikarnum.

Tom Starke, varamarkvörður Bayern, er þá ekki klár í slaginn en hann verður frá út tímabilið vegna meiðsla á olnboga.
Athugasemdir
banner
banner
banner