Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 12. apríl 2014 15:20
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Jón Daði búinn að skora öll mörk Viking á tímabilinu
Jón Daði fer hamförum í Noregi
Jón Daði fer hamförum í Noregi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lillestrøm 0 - 1 Viking
0-1 Jón Daði Böðvarsson ('86)

Jón Daði Böðvarsson hefur byrjað tímabilið í Noregi frábærlega og er þegar búinn að skora þrjú mörk í þremur leikjum og tryggja Viking fjögur stig af þeim fimm sem liðið hefur í deildinni.

Jón Daði hefur komið af bekknum í öllum leikjunum og gert öll mörk Viking á tímabilinu.

Lillestrøm er með fjögur stig eftir þrjá leiki eftir að hafa lagt Sandnes Ulf af velli 4-1 í síðustu umferð.

Sverrir Ingi Ingason, Indriði Sigurðsson, Björn Daníel Sverrisson og Steinþór Þorsteinsson voru allir í byrjunarliði Viking, en aðeins fyrirliðanum Indriða var skipt af velli í leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner