Haugesund og Valerengea í norsku úrvalsdeildinni gerðu í dag 1-1 jafntefli er liðin mættust á heimavelli Haugesund.
Heimamenn komust yfir með góðu marki á 45. mínútu er Geir Ludvig Fevang skoraði og leit allt út fyrir að liðið færi með sigur af hólmi.
Viðar Örn Kjartansson var hinsvegar í byrjunarliði Valerenga í dag og sá til þess að liðið færi ekki tómhent heim.
Hann jafnaði metin á 90. mínútu leiksins úr vítaspyrnu og lokatölur því 1-1. Viðar Örn er kominn með þrjú mörk í þremur leikjum en liðið er með fjögur stig í sjöunda sæti.
Athugasemdir