Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 12. apríl 2014 22:02
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Real Madrid fór létt með Almería
Gareth Bale skoraði gegn Almeria í kvöld
Gareth Bale skoraði gegn Almeria í kvöld
Mynd: Getty Image
Síðasta leik kvöldsins í spænska boltanum var að ljúka en Real Madrid komst upp í annað sætið með öruggum sigri á Almeria.

Angel Di Maria kom Madrídingum yfir á 28. mínútu áður en Gareth Bale bætti við öðru í byrjun síðari hálfleiks.

Isco bætti við þriðja markinu á 56. mínútu áður en Alvaro Morata gulltryggði 4-0 sigur liðsins með laglegu marki.

Lokatölur því 4-0 en Real Madrid er í öðru sæti með 79 stig. Barcelona er í þriðja sæti með 78 stig og þá er Atletico Madrid í efsta sæti með 79 stig einnig.

Úrslit og markaskorarar:

Real Madrid 4 - 0 Almeria
1-0 Angel Di Maria ('28 )
2-0 Gareth Bale ('53 )
3-0 Isco ('56 )
4-0 Alvaro Morata ('85 )
Athugasemdir
banner
banner
banner