Yfir 8000 lið skráð til leiks
Líkt og í fyrra er Fótbolti.net með sérstaka Fantasy deild í kringum Pepsi-deildina í sumar en deildin er komin í loftið á slóðinni fantasy.fotbolti.net. Um er að ræða opinbera Fantasy deild Toppfótbolta, samtaka félaganna í efstu deild.
Ennþá er hægt að skrá ný lið til keppni áður en 2. umferðin hefst en markaðurinn lokar klukkan 16:00 á sunnudag.
Leikurinn er mjög svipaður og Fantasy leikurinn í ensku úrvalsdeildinni sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi undanfarin ár.
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Hægt er að skrá lið til leiks og gera breytingar á liðinu sínu til klukkan 16:00 á sunnudag þegar önnur umferðin fer fram. 8100 manns hafa skráð lið sitt til leiks, taktu þátt!
Stigagjöfin að þessu sinni verður samtengd við textalýsingakerfi Fótbolta.net og uppfærslan því mun sneggri en í fyrra
Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!




