Chuck á bekknum hjá Þór
Þór og FH mætast á Þórsvelli á Akureyri klukkan 17:00 en leikurinn er liður í 2. umferð Pepsi-deild karla.
Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum
Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum
Athygli vekur að framherjarnir Atli Viðar Björnsson og Albert Brynjar Ingason sem byrjuðu báðir og skoruðu báðir í liði FH í síðasta leik sem var 2-1 sigurinn gegn Keflavík eru ekki í leikmannahópnum í dag.
Báðir glíma þeir við meiðsli og í þeirra stað koma þeir Brynjar Ásgeir Guðmundsson og Kristján Gauti Emilsson inn í liðið.
Þórsarar töpuðu illa, 4-1 fyrir Breiðablik í Kópavoginum í fyrstu umferðinni. Páll Viðar Gíslason þjálfari liðsins gerir eina breytingu á liðinu frá þeim leik, Jóhann Helgi hannesson kemur inn fyrir Orra Sigurjónsson en framherjinn sterki Chuck Chijindu er kominn til landsins og er á bekknum.
Þór:
Joshua Wicks
Guiseppe Funicello - Atli Jens Albertsson - Hlynur Atli Magnússon - Ingi Freyr Hilmarsson
Orri Freyr Hjaltalín - Edin Beslija
Mark Tubæk - Jóhann Helgi Hannesson - Sveinn Elías Jónsson
Jóhann Þórhallsson
Varamenn: Srdjan Rajkovic, Baldvin Ólafsson, Janez Vrenko, Jónas Björgvin Sigurbergsson, Sigurður Marinó Kristjánsson, Orri Sigurjónsson, Chuck Chijindu.
FH:
Róbert Örn Óskarsson
Guðjón Árni Antoníusson - Guðmann Þórisson - Freyr Bjarnason - Sam Tillen
Brynjar Ásgeir Guðmundsson - Emil Pálsson
Björn Daníel Sverrisson
Ólafur Páll Snorrason - Kristján Gauti Emilsson - Atli Guðnason.
Varamenn: Daði Lárusson (m), Ingimundur Níels Óskarsson, Jón Ragnar Jónssonk, Einar Karl Ingvarsson, Kristján Flóki Finnbogason, Dominc Furness, Viktor Örn Guðmundsson.




