Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 12. maí 2013 09:00
Fótbolti.net
Máni Péturs: Alltof hörð refsing ef Silfurskeiðin fær áminningu
Silfurskeiðin gaf bretti af Pepsi til Samhjálpar
Máni Pétursson.
Máni Pétursson.
Mynd: Aðsend
Rætt var um Silfurskeiðina, stuðningsmannasveit Stjörnunnar, í sjónvarpsþættinum Fótbolta.net á SportTV í fyrradag. Máni Pétursson, stuðningsmaður Stjörnunnar, og Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ voru þar í spjalli en Silfurskeiðin fékk mikla gagnrýni eftir söngva sína gegn KR í fyrstu umferðinni.

,,Ég hef sent erindi á Stjörnuna og mun fylgja því eftir að þeir taki á þessu máli innan síns félagið. Eftir svona hegðun er Silfurskeiðin komin á ákveðið skilorð ef svo má segja í sumar," sagði Þórir meðal annars í þættinum.

Máni Pétursson kom Silfurskeiðinni til varnar og benti á að þeir hafi látið stuðningsmannaverðlaun sín í fyrra renna í gott málefni.

,,Ég vil meina að þetta sé einn besti stuðningsmannahópur sem til er, þetta eru góðhjartaðir drengir. Ég vil benda á eitt atriði sem lýstir stuðningsmannasveit Silfurskeiðarinnar betur en nokkuð annað."

,,Það eru veitt verðlaun árlega sem snúast um það að vera stuðningsmannasveit ársins. Menn hafa staðið fyrir utan félögin sín og selt litlum börnum gosdrykkja brettin sem þau hafa fengið í verðlaun."

,,Slfurskeiðin fór með brettið sitt af Pepsi og gaf samhjálp það, öllum útigangsmönnum á Íslandi, í nafni ungs Garðbæings sem lést úti á götum Reykjavíkur. Það var ekki farið með þetta í blöðin til að sýna að þetta sé flott og æðsileg stuðningsmannasveit."

,,Þetta er Silfurskeiðin, þetta er bara svona hópur. Þeir sem eru með gott og hreint hjarta, þeir missa sig líka í ástríðunni fyrir fótboltann. Það var nákvæmlega það sem silfurskeiðin gerði. Að senda þeim áminningu út af þessu finnst mér vera alltof hörð refsing, ef það er einhver sem ætti að fá áminningu þá er það þessi dómari sem gat ekki notað línuverðina sína."


SMELLTU HÉR TIL AÐ HORFA Á ÞENNAN HLUTA SJÓNVARPSÞÁTTARINS
Slapp
banner
banner
banner