Það var að vonum þungt hljóðið í Páli Gíslasyni eftir tap Þórs gegn FH á Akureyri í dag. Eftir hörkuleik var niðurstaðan þriggja marka sigur gestanna frá Hafnafirði.
,,Við lögðum upp með að verjast vel og nýta svo sóknarhæfileika okkar í að sækja hratt og fengum úr því nokkur færi," sagði Páll. ,,Heiltyfir sá ég mikla bætingu frá því í seinasta leik en í seinni hálfleik töpuðum við þræðinum og fengum á okkur þrjú mörk. Fram að öðru markinu var þetta leikur en eftir það var þetta nokkuð ljóst. Þriðja markið var óþarfi."
,,Við þurfum að halda markinu okkar hreinu lengur og bæta okkur. Það er erfitt að vinna ef þú færð á þig þrjú til fjögur mörk í leik. Við erum mættir aftur í deild þeirra bestu og þurfum að sýna okkur og sanna. Það þýðir ekkert að rífa sængina yfir haus og grenja. Við þurfum að hrista af okkur slenið og ef það er eitthvað lið sem getur það þá er það Þórsliðið."
,,Við horfum á þetta frá aftasta manni til þess fremsta. Það taka allir þátt í sóknarleiknum og við þurfum fyrst og fremst að laga varnarleikinn. Við eigum stórt verkefni framundan og það er að fá liðsheildina til að virka betur."
"Við fengum færi til að skora mörk en nýttum þau ekki og var refsað fyrir það, grimmilega. FH-ingarnir eru reynslumiklir og nýttu sér klaufaskap okkar bæði í sókn og vörn."
Aðspurður hvort hann hyggðist styrkja liðið svaraði Páll svohljóðandi; ,,Ekki með neinum nýjum nöfnum, nei. En það er ljóst að við þurfum að styrkja það innanfrá."
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér að ofan.























