Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 12. maí 2013 23:00
Sebastían Sævarsson Meyer
PSG franskur meistari í fyrsta sinn í 19 ár
Paris Saint-Germain sigldi franska meistaratitlinum í höfn eftir 1-0 sigur á Lyon í kvöld, en þetta er í fyrsta sinn síðan 1994 sem félagið verður franskur meistari.

Jeremy Menez skoraði sigurmark PSG eftir laglegt samspil Thiago Motta og Zlatan Ibrahimovic áður en boltinn barst til Menez. Skoraði hann sitt fimmta mark á tímabilinu og tryggði liðinu stigin þrjú sem liðið þurti til að binda enda á titilbaráttuna.

Liðið er nú með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir og því ljóst að Paris Saint-Germain er franskur meistari.

Þetta er þriðji meistaratitill Paris Saint-Germain í 42 ára sögu félagsins.

Zlatan Ibrahimovic og David Beckham hafa þar með orðið meistarar í fjórum löndum.
Slapp
banner