Spánarmeistararnir í Barcelona lögðu Atletico Madrid 2-1 í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en liðið varð meistari í gær eftir að Real Madrid gerði aðeins 1-1 jafntefli við Espanyol.
Barcelona lenti undir í leiknum þegar markahrókurinn Radamel Falcao kom Atletico Madrid í 1-0 en Alexis Sanchez jafnaði fyrir Barcelona á 72. mínútu. Átta mínútum síðar komst Barcelona síðan yfir eftir sjálfsmark frá Gabi og þar við stóð.
Barcelona er nú með tíu stiga forskot á toppi deildarinnar með 91 stig og á þrjá leiki eftir.
Fyrr í dag komst Valencia upp fyrir Real Sociedad í fjórða sætið með öruggum 4-0 sigri á rayo Vallecano þar sem Roberto Soldado skoraði tvö mörk. Real Sociedad getur endurheimt fjórða sætið á morgun þegar liðið leikur gegn Granada.
Þá er Real Betis einu stigi frá sæti í Evrópudeildinni eftir 1-0 sigur á fallbaráttuliði Celta Vigo.
Real Betis 1 - 0 Celta Vigo
1-0 Ruben Castro ('67 )
Rayo Vallecano 0 - 4 Valencia
0-1 Roberto Soldado ('28 )
0-2 Roberto Soldado ('34 )
0-3 Andres Guardado ('61 )
0-4 Nelson Valdez ('90 )
Atletico Madrid 1 - 2 Barcelona
1-0 Radamel Falcao ('51 )
1-1 Alexis Sanchez ('72 )
1-2 Gabi ('80 , sjálfsmark)


