Útvarpsþátturinn Fótbolti.net var á sínum stað á X-inu 97,7 í gær en Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson stjórnuðu þættinum.
Stærsta frétt vikunnar í fótboltaheiminum var klárlega þegar Sir Alex Ferguson tilkynnti að hann muni hætta með lið Manchester United eftir tímabilið.
Kristján Jónsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, þekkir Sir Alex vel og hann ræddi um hann í þættinum í gær.
Hægt er að hlusta á upptöku frá umræðunum í spilaranum hér að ofan.


