Veigar Páll Gunnarsson lék sinn fyrsta heimaleik fyrir Stjörnuna í fjölda ára í 3-2 sigri á nýliðum Víkings. Hann var ánægður með sigurinn og stemninguna á vellinum. Þetta var fyrsti sigur Stjörnunnar á tímabilinu. Veigar er ánægður að vera kominn heim í Stjörnuna.
,,Þetta er frábært, sérstaklega þegar maður vinnur. Þá er þetta töluvert skemmtilegra. Þetta var eins og ég bjóst við, stemningin hrikalega góð," sagði Veigar sem viðurkennir að það hafi verið aðeins fleiri í stúkunni á leiknum í kvöld en þegar hann spilað hér heima síðast,
,,Það voru ca. 900 fleiri á leiknum í kvöld en þegar ég var hér síðast," sagði hann og glotti.
,,Fyrri hálfleikurinn var mjög góður, við áttum fyrri hálfleikinn. En síðan gerist það, sem vill oft gerast að lið detta niður í seinni hálfleik og það gerðist hjá okkur. Við eigum ekki að gera það og gefum færi á okkur og okkur var refsað tvisvar. Sem betur fer náum við hinsvegar að enda leikinn með þrjú stig."
,,Það er léttir að vera kominn með fyrsta sigurinn. Ef við hefðum tapað hér í dag þá hefði þetta verið skelfileg byrjun en við erum sáttir með byrjunina," sagði sóknarmaðurinn knái í viðtali við Fótbolti.net eftir leikinn.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í Sjónvarpinu hér að ofan.























