Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. júní 2018 08:53
Elvar Geir Magnússon
Allir með á æfingu Íslands í morgun
Icelandair
Alfreð Finnbogason á æfingu.
Alfreð Finnbogason á æfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Allir 23 leikmennirnir í íslenska landsliðshópnum tóku þátt í æfingu í morgun, allavega þann tíma sem fjölmiðlamenn máttu fylgjast með æfingunni.

Venjan er að fyrstu 15 mínútur æfingarinnar séu opnar fyrir fjölmiðlamenn.

Sá stundarfjórðungur fór í létta upphitun undir stjórn Fitness-þjálfarans Sebastian Boxleitner.

Roland Andersson, sem er í njósnateymi Íslands, var á æfingunni en hér síðar í dag kemur inn viðtal við hann. Roland var Lars Lagerback til aðstoðar og fékk Lars hann til starfa fyrir KSÍ.
Athugasemdir
banner
banner
banner