Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   þri 12. júní 2018 09:30
Magnús Már Einarsson
Kári Árna: Erum búnir að fara yfir þetta allt
Icelandair
Kári Árnason á æfingu í Rússlandi.
Kári Árnason á æfingu í Rússlandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórir dagar eru í að Ísland mæti Argentínu í fyrsta leik á HM. Varnarmaðurinn Kári Árnason segir að íslenska liðið verði að ná að halda betri spilamennsku út allan leikinn heldur en í vináttuleikjunum gegn Gana og Noregi.

„Við verðum að vera 100%. Við höfum sýnt það í æfingaleikjunum að þegar við slökum á þá erum við ekki nógu góðir," sagði Kári í viðtali fyrir æfingu liðsins í dag.

„Þegar við vorum 100% gegn Gana þá völtuðum við yfir þá en síðan slökum við á og föllum of langt frá þeim í seinni hálfleik. Þá erum við í veseni og það má ekki gerast. Við erum búnir að fara yfir þetta allt. Við vorum með góðan fund um það í gær hvað má betur fara."

Í leiknum gegn Argentínu beinast sjónir margra að Lionel Messi en íslenksu varnarmennirnir fá verðugt verkefni þegar þeir mæta honum.

„Við höfum rætt á fundum að ef við myndum vita leynitrix til að stoppa hann þá værum við sennilega á einhverjum öðrum stað í fótboltanum. Á sínum degi er ekkert hægt að stoppa hann en við erum með ýmsar hugmyndir hvernig við ætlum að vinna þetta. Það verður síðan að koma í ljós hvort það gangi upp."

Athygli vakti gegn Gana þegar Kári tók langt innkast undir lok leiksins. Kári er vanari því að vera inni í teig að skalla boltann eftir innköstin en hann tók langt innkast gegn Gana þar sem Aron Einar Gunnarsson og Hörður Björgvin Magnússon voru ekki inni á vellinum.

„Ég hef notað þetta með félagsliðum en er aðeins farinn í öxlinni eftir að hafa gert þetta aðeins of mikið á tímabili. Það er ánægjulegt að ég geti farið í þetta hlutverk ef við þurfum þess," sagði Kári.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner