Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 12. júlí 2013 11:37
Magnús Már Einarsson
Asier Illarramendi til Real Madrid á 38 milljónir evra (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur keypt miðjumanninn Asier Illarramendi frá Real Sociedad á 38 milljónir evra eða í kringum 33 milljónir punda.

Illarramendi var með riftunarverð í samningi sínum upp á 38 milljónir evra og Real Madrid nýtti sér það.

Illarramendi á að fylla skarð Xabi Alonso í framtíðinni en sá síðarnefndi verður 32 ára síðar á árinu.

Til að byrja með mun Illarramendi berjast við Alonso, Sami Khedira og Luka Modric um sæti á miðjunni hjá Real Madrid.

Illarramendi er 23 ára gamall en hann hefur leikið með öllum yngri landsliðum Spánverja.
Athugasemdir
banner
banner
banner