Sean Dyche var að sjálfsögðu gríðarlega sáttur með 3-2 sigur sinna manna á Stamford Bridge gegn Englandsmeisturum Chelsea í dag.
„Við skoruðum mjög góð mörk í dag en í seinni hálfleik náðum við okkur ekki alveg á strik."
„Áttum við að eiga von á þessu?, svarið er nei ef ég á að vera hreinskilinn," sagði Sean Dyche.
Dyche var ánægður með frammistöðu dómarans í dag en hann rak meðal annars tvo leikmenn Chelsea af velli.
„Þetta voru frábær þrjú stig og dómarinn, ég vil bara segja það að hann var frábær í dag."
Burnley eru ekki bara ánægðir með það að byrja á sigri heldur einnig að ná útisigri því það var heimavöllurinn sem hélt Burnley uppi á síðasta tímabili og stigin voru ekki mörg sem komu inn á útivelli.
Athugasemdir