ÍBV er 1-0 yfir gegn FH í hálfleik í úrslitaleik Borgunarbikars karla á Laugardalsvelli.
Smelltu hér til að sjá textalýsingu frá leiknum
Smelltu hér til að sjá textalýsingu frá leiknum
Mikil stemning er í stúkunni hjá Eyjamönnum en þar er gítarleikari sem heldur uppi fjörinu.
Í fyrri hálfleik eignuðu Eyjamenn sér stemninguna í stúkunni og sungu vel valin lög.
Fyrir leik sleppti Raggi Sjonna, einn aðal stuðningsmaður Eyjamanna, hvítum dúfum, eins og sjá má á myndunum hér að neðan.
Hef aldrei upplifað betri stúku hjá félagsliði á Íslandi #ÍBV #fotboltinet
— Daníel Geir Moritz (@DanelGeirMoritz) August 12, 2017
Er að elska þessa Eyjasöngstemningu á Lagardalsvelli #þetterooooookkarmál #fotboltinet #sport365 #borgunarbikarinn #eyjar #ibv
— Ingvar Örn Ákason (@hryssan) August 12, 2017
Í fyrsta sinn er jafn mikil stemmning á bikaúrslitaleik og þegar Mjölnismenn voru upp á sitt besta 2011. Vel gert Eyjamenn!
— Jón Stefán Jónsson (@Jonsi82) August 12, 2017
Það er svo strangheiðarleg skemmtun í gangi hjá Eyjamönnum. Respect!
— Sóli Hólm (@SoliHolm) August 12, 2017
Athugasemdir