Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 12. ágúst 2017 18:33
Arnar Daði Arnarsson
Sindri Snær: Ætlum að halda okkar eigin Þjóðhátíð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er besta tilfinning í heimi að fá bikarinn og vera komnir í Evrópukeppnina á næsta ári," sagði fyrirliði ÍBV, Sindri Snær Magnússon eftir 1-0 sigur á FH í bikarúrslitum í dag.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  0 FH

„Þetta hefur tvisvar sinnum verið helvíti súrt og í fyrra var þetta helvíti súrt að fara í bátinn og fara heim og valda öllu þessu frábæra fólki vonbrigðum. Þetta var geggjað í dag," sagði Sindri Snær.

Leikmenn ÍBV tóku síðustu helgi rólega þrátt fyrir stærstu helgi ársins í Vestmannaeyjum, þegar Þjóðhátíð stóð yfir.

„Við fórum snemma í bólið alla síðustu helgi og það er þess virði. Við ætlum að halda okkar eigin Þjóðhátíð. Við ákváðum það fyrir Þjóðhátíðina að fara fyrr heim á kvöldin og halda okkar eigin Þjóðhátíð í kvöld."

Sindri var ánægður með fyrri hálfleikinn.

„Fyrri hálfleikurinn var frábær. Seinni hálfleikurinn var ekki eins góður, mér fannst við halda boltanum vel í þeim fyrri og gáfum FH-ingum engan tíma á boltann. Í seinni hálfleik dettum við full aftarlega en aftur á móti fáum við þrjú bestu færi seinni hálfleiksins undir lokin þegar við erum einir gegn markmanni. Game-planið gekk þokkalega vel upp," sagði fyrirliði ÍBV.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner