Elvar Geir Magnússon skrifar frá Laugardalsvelli
Sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason vinnur að heimildarmynd um íslenska landsliðið. Hann fylgdi liðinu til Lettlands og spjallaði við Fótbolta.net um myndina á æfingu á Laugardalsvelli á morgun.
„Ég var staddur erlendis og sá umfjöllun um Kosta Ríka í kringum HM í sumar. Þar var fjallað um þetta fámenna land sem var að gera góða hluti á HM. Þá fór ég að velta því fyrir mér, ef Ísland hefði komist á HM þá hefði verið sorglegt að enginn hefði verið að gera heimildarmynd um þann árangur," segir Sölvi.
„Hugmyndin mín var að fylgja liðinu í gegnum undankeppnina og ná öllum þessum hliðarvinklum sem ég held að fólk átti sig ekki á. Þaðan er þessi hugmynd komin. Ég er byrjaður að skjóta efni en ég er að vinna í fjármögnun á myndinni. Þetta er allt á fyrstu stigum."
„Það er mikið af sögum inn í þessu liði og ég nefni strákana í Rússlandi sem dæmi. Líf þeirra er svolítið eins og hjá sjómönnum í gamla daga," segir Sölvi en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir