Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 12. október 2015 19:00
Magnús Már Einarsson
Ancelotti vill snúa aftur á næsta ári
Innanfótar.
Innanfótar.
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti er opinn fyrir því að taka við nýju liði á næsta ári. Ancelotti hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Real Madrid í vor.

„Ég mun ræða við menn og ákveða mig. Fyrir nokkrum vikum var ég hræddur við að fá símtalið en núna styttist í endurkomuna. Ég er tilbúinn að hella mér aftur í þetta í janúar nema eitthvað furðulegt gerist," sagði Ancelotti.

Ancelotti stýrði Chelsea á sínum tíma og hann var orðaður við Liverpool áður en Jurgen Klopp tók við.

„Ég myndi vilja fara aftur í ensku úrvalsdeildina. Það er kjörið umhverfi og ekki bara fyrir fótboltann heldur allt í kringum boltann," sagði Ancelotti.

„Þú getur unnið þar undir réttri pressu. Áður en ég hætti þá vil ég prófa að starfa aftur á Englandi."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner