Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 12. október 2015 22:45
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Englendingar slógust við Litháa
Mynd: Getty Images
Englendingar heimsóttu Litháa í lokaleik sínum í undankeppni EM 2016.

England vann leikinn með þriggja marka mun og lauk þannig keppni með tíu sigra í tíu leikjum.

Innan vallar voru bæði Englendingar og Litháar prúðir þar sem aðeins fjögur gul spjöld litu dagsins ljós, öll á lokakafla leiksins.

Það sama var ekki upp á teningnum utan vallar þar sem kom til átaka á milli stuðningsmannahópa landsliðanna á áhorfendapöllunum.

Hér fyrir neðan má sjá stutt myndband þar sem áhorfendur takast á en tugir lögreglumanna voru snöggir að stöðva átökin.


Athugasemdir
banner
banner
banner