Ahmed Musa, framherji Leicester, nýtti tækifærið þegar hann fór til heimalandsins Nígeríu í landsleikjahléinu í vikunni.
Musa opnaði þá formlega bensínstöð í bænum Kano en bensínstöðin er í hans eigu.
Hinn 24 ára gamli Musa skírði bensínstöðina Myca-7.
Musa opnaði þá formlega bensínstöð í bænum Kano en bensínstöðin er í hans eigu.
Hinn 24 ára gamli Musa skírði bensínstöðina Myca-7.
Um er að ræða aðra bensínstöðina sem Musa eignast en hann hefur verið duglegur að stunda viðskipti eftir að hann varð atvinnumaður i fótbolta.
Musa á einnig fasteignasölu í heimalandinu sem og líkamsræktarstöð.
Hér að neðan má sjá fleiri myndir af Musa fylla tankinn á bílnum sínum við opnun bensínstöðvarinnar í Kano.
Athugasemdir