Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. nóvember 2014 16:38
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deildin
Ásgeir Börkur kynntur hjá Fylki á morgun?
Ásgeir Börkur Ásgeirsson.
Ásgeir Börkur Ásgeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkir hefur boðað til fréttamannafundar í Lautinni á morgun klukkan 17:30.

Fram kemur í tilkynningu til fjölmiðla að knattspyrnudeild Fylkis muni skrifa undir samning við nýjan leikmann.

Þarna er væntanlega á ferð Ásgeir Börkur Ásgeirsson, miðjumaðurinn öflugi, sem legið hefur undir feldi að undanförnu.

Hann hefur verið orðaður við Víking og Fylki sem er hans uppeldisfélag.

„Það er ekkert leyndarmál að við viljum fá Ásgeir Börk til okkar. Þau mál eru í vinnslu og hann vildi fá einhverja daga til að anda að sér íslenska fjallaloftinu. Við setjum stefnuna á að klára okkar leikmannamál um mánaðamótin en það eru ansi mörg ár síðan þau mál kláruðust svona snemma hjá Fylki," sagði Ólafur Geir Magnússon í stjórn knattspyrnudeildar Fylkis við Fótbolta.net í gær.

Fylkir hafnaði í sjötta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en eftir erfiða byrjun var liðið nálægt því að tryggja sér Evrópusæti í lokin.
Athugasemdir
banner
banner