Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. nóvember 2014 13:37
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir.is 
Ólafur Ingi leikfær fyrir kvöldið
Icelandair
Ólafur Ingi Skúlason.
Ólafur Ingi Skúlason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vísir.is greinir frá því að miðjumaðurinn Ólafur Ingi Skúlason, leikmaður Zulte Waregem í Belgíu, sé leikfær fyrir vináttuleik Belgíu og Íslands í kvöld.

Ólafur veiktist í vikunni og var haldið frá hópnum til að koma í veg fyrir smit.

Samkvæmt upplýsingum frá fjölmiðlafulltrúa KSÍ er Ólafur orðinn frískur og gat æft í hádeginu,

Eini leikmaðurinn sem er útilokaður frá leiknum í kvöld er varnarmaðurinn Kári Árnason sem er meiddur á tá en vonast er til að hann leiki gegn Tékkum á sunnudag.

Leikur Belgíu og Íslands hefst klukkan 19:45 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Fótbolta.net. Við hvetjum lesendur til að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur yfir leiknum á Twitter.
Athugasemdir
banner
banner