Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 12. nóvember 2014 10:00
Magnús Már Einarsson
Gylfi sendir SMS á Vertonghen
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson mun mæta nokkrum gömlum liðsfélögum sínum úr Tottenham þegar Ísland og Belgía leiða saman hesta sína í vináttuleik í kvöld klukkan 18:45.

Í liði Belga eru Jan Vertonghen, Moussa Dembele og Nacer Chadli leikmenn Tottenham.

,,Ég þekki þá þrjá auðvitað vel. Þeir eru allir góðir leikmenn," sagði Gylfi við belgíska blaðamenn í gær.

,,Ég hef meira segja verið að senda SMS skilaboð til Jan í vikunni. Hann er fyndinn náungi," bætti Gylfi við en hann býst við erfiðum leik í kvöld.

,,Styrkur Belga er að þeir hafa nokkra góða leikmenn í hverri stöðu. Byrjunarliðið er ekki einungis sterkt heldur allur hópurinn."

Vertonghen er sjálfur mjög spenntur að mæta Gylfa og Kolbeini Sigþórssyni sem var með honum hjá Ajax á sínum tíma.



Athugasemdir
banner
banner