Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mið 12. nóvember 2014 23:02
Magnús Már Einarsson
skrifar frá Brussel
Heimir: Einn á bekknum hefði ekki varið þetta allt
Icelandair
,,Svona er þetta.
,,Svona er þetta." Heimir sýnir Hólmari Eyjólfssyni leikplanið á ipad áður en hann fer inn á.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Fyrirsögnin hjá mér er meira jákvætt en neikvætt," sagði Heimir Hallgrímsson annar af landsliðsþjálfurum Íslands eftir 3-1 tapið gegn Belgum í kvöld. ,,Leikurinn var mjög góður af okkar hálfu og þetta var mjög góð æfing fyrir leikinn á móti Tékkum."

Níu breytingar voru á byrjunarliði Íslands og margir leikmenn sýndu fína frammistöðu.

,,Þetta gefur okkur fleiri möguleika og setur fleiri hugmyndir í kollinn á okkur. Hvort sem við breytum liðinu eða ekki á veitir þetta þeim sem spila á sunnudag meira aðhald."

Thibaut Courtois fór á kostum í marki Belga og ef einhver annar markvörður hefði verið í markinu í kvöld hefði leikurinn getað farið öðruvísi.

,,Viltu segja kannski í hvaða liði hann væri þá? Við þekkjum einn á bekknum sem hefði ekki varið þetta allt," sagði Heimir og ýjaði þar að því að Simon Mignolet markvörður Liverpool hefði ekki staðið sig jafn vel og Courtois.

,,Ég hugsa að það verði allir klárir á sunnudaginn. Það var tilgangurinn, að taka ekki neina sénsa," sagði Heimir sem var ekki smeykur þegar Aron Einar Gunnarsson meiddist lítillega í fyrri hálfleik.

,,Hann er harður nagli. Þórsarar frá Akureyri eru harðir andskotar," sagði Heimir brosandi að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner