Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 12. nóvember 2014 18:30
Elvar Geir Magnússon
Kiddi Jak í Lúxemborg
Kristinn Jakobsson.
Kristinn Jakobsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Jakobsson mun dæma leik Lúxemborg og Úkraínu í undankeppni EM en leikið verður í Lúxemborg, laugardaginn 15. nóvember.

Kristni til aðstoðar í þessum leik verða þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson.

Sprotadómarar verða þeir Þóroddur Hjaltalín og Þorvaldur Árnason og varadómari verður Sigurður Óli Þorleifsson.

Þriðjudaginn 18. nóvember mun Kristinn svo dæma vináttulandsleik Póllands og Sviss og með honum í þeim leik verða aðstoðardómararnir, Gunnar Sverrir Gunnarsson og Sigurður Óli Þorleifsson.
Athugasemdir
banner
banner