Tomas Sivok, landsliðsmaður Tékka, býst við gríðarlega erfiðum leik gegn Íslendingum í Plzen í undankeppni EM næstkomandi sunnudag.
,,Það eru erfiðir leikir framundan og sá erfiðasti verður líklegast leikurinn gegn Íslendingum,” sagði Sivok en hann telur að Ísland sé besta liðið í riðlinum ef mið er tekið af aga og skipulagi inni á vellinum.
,,Þeir verða erfiðari andstæðingur en Hollendingar. Holland býr yfir betri leikmönnum en Ísland er með betri liðsheild. Þeir búa þó einnig yfir gæðaleikmönnum eins og Gylfa Þór Sigurðssyni og Kolbeini Sigþórssyni en helsti styrkleiki þeirra er liðsheildin,” sagði Sivok ennfremur og bætti við:
,,Ég hef heyrt að hryggjarstykki liðsins samanstandi af leikmönnum sem hafa spilað saman fra 17 ára aldri. Úrslitin tala fyrir sig og því verðum við að gefa allt okkar í leikinn.”
Ísland spilar vináttulandsleik gegn Belgíu í kvöld áður en liðið heldur til Tékklands í lok vikunnar.
Athugasemdir