Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. nóvember 2014 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Óvíst hve alvarleg meiðsli Barry eru
Mynd: Getty Images
Ekki er vitað hversu alvarleg ökklameiðsli Gareth Barry, miðjumanns Everton, eru. Þó er talið að hann verði fjarri góðu gamni í allavega nokkrar vikur.

Þessi 33 ára gamli miðjumaður var borinn af velli á 13. mínútu þegar Everton gerði 1-1 jafntefli við Sunderland á sunnudag, en upphaflega var óttast að Barry hefði fótbrotnað.

Nú er þó ljóst að hann er ekki brotinn, en varð þó fyrir skaða á liðamótum og er ekki hægt að meta alvarleikann nákvæmlega fyrr en bólgan hefur minnkað.

Everton veit því ekki hve lengi liðið verður án Barry, sem hefur verið alger lykilmaður frá því að hann kom upphaflega á láni frá Manchester City fyrir síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner