Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 12. nóvember 2014 16:55
Magnús Már Einarsson
skrifar frá Brussel
Stuðullinn á að Ísland vinni 8,40
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net
Veðbankinn Ladbrokes í Belgíu hefur ekki mikla trú á íslenska landsliðinu fyrir vináttuleikinn gegn Belgum í kvöld.

Stuðullinn á að Ísland vinni leikinn er 8,40 sem er ansi hátt.

Belgar, sem eru í fjórða sæti á heimslista FIFA, fá stuðulinn 1,40.

Ísland hefur unnið alla þrjá leiki sína í undankeppni EM en Belgar eru þrátt fyrir það sigurvissir fyrir leikinn í kvöld.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:45 og ítarlega verður fylgst með gangi mála á Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner