Tilkynnt var í gær að Marokkó mun ekki halda Afríkukeppnina á næsta ári en ótti við ebólufaraldurinn gerir það að verkum.
Marokkó mun ekki taka þátt í keppninni þar sem þjóðin átti að fá sæti sem gestgjafar.
Marokkó mun ekki taka þátt í keppninni þar sem þjóðin átti að fá sæti sem gestgjafar.
Ekki hefur verið tilkynnt hvar keppnin verður haldin en hún á að fara fram 17. janúar til 8. febrúar.
Samkvæmt frétt BBC hafa þrjár þjóðir lýst yfir áhuga á að halda mótið og verður nýr leikstaður valinn í dag.
Að minnsta kosti 5 þúsund manns hafa látið lífið í ebólufaraldrinum, aðallega í Sierra Leone, Líberíu og Gineu í vesturhluta Afríku.
Í Marokkó var óttast að áhorfendur sem myndu ferðast til að fylgjast með keppninni myndu bera með sér veiruna.
Athugasemdir