Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 12. nóvember 2014 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Wesley Sneijder á leið aftur til Ítalíu?
Sneijder gæti verið á förum frá Galatasaray.
Sneijder gæti verið á förum frá Galatasaray.
Mynd: Getty Images
Tyrkneskir fjölmiðlar halda því fram að umboðsmaður Wesley Sneijder hafi fundað með forráðamönnum ítölsku meistaranna í Juventus.

Hollenski landsliðsmaðurinn er á mála hjá Galatasaray, en samkvæmt Webdehaber vill hann snúa aftur til Ítalíu, þar sem hann vann þrennuna eftirminnilegu með Inter árið 2010.

Því er haldið fram að umboðsmaður hans Guido Albers sé nú þegar búinn að funda með Juventus og tók hann það skýrt fram að Sneijder vildi ganga til liðs við félagið.

Juventus hefur orðið ítalskur meistari undanfarin þrjú ár og gæti Sneijder hjálpað liðinu að landa fjórða titlinum í röð ef hann gengur í raðir þeirra í janúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner