Kristján Flóki Finnbogason lék sinn annan A-landsleik þegar Ísland tapaði fyrir Tékkum í vináttulandsleik í Katar í liðinni viku.
Þessi sóknarmaður úr Hafnarfirðinum fékk þá spurningu hvort hann teldi möguleika á að hann gæti komið sér í landsliðshópinn sem fer til Rússlands á næsta ári?
Þessi sóknarmaður úr Hafnarfirðinum fékk þá spurningu hvort hann teldi möguleika á að hann gæti komið sér í landsliðshópinn sem fer til Rússlands á næsta ári?
„Það er mjög mikil samkeppni, ég þarf bara að halda áfram að einbeita mér og bæta mig. Þá veit maður ekki hvað gerist. Það er enn smá tími í mótið. Ég held í vonina og geri allt sem ég get til að bæta mig," segir Kristján Flóki.
Það settu margir spurningamerki við þá ákvörðun Kristjáns Flóka að fara úr FH í Start fyrr á þessu ári. Start var þá í norsku B-deildinni en hefur náð að komast upp.
„Þetta hefur verið mjög skemmtilegur tími og ég hef lært mikið á stuttum tíma. Mér fannst þetta vera gott skref."
Sjáðu viðtalið í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir