Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 12. desember 2017 12:49
Elvar Geir Magnússon
Björn Daníel kallaður til baka til AGF á nýju ári
Björn Daníel Sverrisson.
Björn Daníel Sverrisson.
Mynd: Getty Images
Hafnfirski miðjumaðurinn Björn Daníel Sverrisson snýr aftur til AGF í janúar en hann hefur leikið með Vejle á lánssamningi.

AGF er í ellefta sæti af fjórtán liðum dönsku úrvalsdeildarinnar.

Þjálfaraskipti urðu hjá AGF í haust og vill David Nielsen, nýr þjálfari liðsins, fá Björn inn í hópinn hjá sér. Hann segir við danska fjölmiðla að Björn muni eiga jafna möguleika og aðrir leikmenn.

Komið er vetrarhlé í dönsku úrvalsdeildinni en keppni fer aftur af stað í febrúar.

Þess má geta að Vejle trónir á toppi B-deildarinnar en Björn Daníel átti ekki fast sæti í byrjunarliði liðsins.
Athugasemdir
banner
banner