Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 12. desember 2017 09:03
Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnuskóli Gaman Ferða fyrir stelpur í Þýskalandi
Mynd: Gaman Ferðir
Það er óhætt að segja að knattspyrnuskóli Gaman Ferða síðasta sumar hafi slegið rækilega í gegn. Að þessu sinni er stefnan tekin á Þýskaland. Bæði kvenna- og karlalandslið Þýskalands hafa verið í fremstu röð í heiminum síðustu áratugi og tilvalið að kynnast því hvernig þýska stálið verður til.

Daði Rafnsson, sem nýlega varð bikarmeistari með Jiangsu Suning í Kína verður skólastjóri. Hann mun fá til liðs við sig frábæra þjálfara frá FFC Frankfurt, Mainz 05, þýska knattspyrnusambandinu og fleiri toppliðum. Daði er með áralanga reynslu í þjálfun yngri flokka og hefur meðal annars verið yfirþjálfari hjá Breiðabliki. Daði skartar UEFA A þjálfaragráðu.

Gist verður í Darmstadt sem er skammt fyrir utan Frankfurt og verður meðal annars æft á æfingasvæði akademíu Darmstadt tvisvar á dag, einnig verður æft tvo daga á æfingasvæði FFC Frankfurt. Farið verður í skemmtigarð auk þess fáum við að horfa á æfingar hjá atvinnumannaliðum og spilaðir vináttuleikir við lið á svæðinu.

Skólinn verður haldinn 28. júlí til 4. ágúst fyrir stelpur á aldrinum 14 – 16 ára. Síðasta sumar komust færri að en vildu! Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að æfa eins og atvinnukona.

Nánari upplýsingar hér

Einnig er hægt að hafa samband í síma 560-2000 eða senda póst á [email protected].
Athugasemdir
banner
banner
banner