Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 12. desember 2017 15:30
Magnús Már Einarsson
Toby Alderweireld missir af næstu tíu leikjum Tottenham
Mynd: Getty Images
Toby Alderweireld, varnarmaður Tottenham, snýr ekki aftur í liðið fyrr en í febrúar samkvæmt nýjustu fréttum.

Belginn meiddist aftan í læri í sigurleiknum gegn Real Madrid þann 1. nóvember síðastliðinn.

Alderweireld hefur verið frá keppni síðan þá og nú er ljóst að langt er í endurkomu hans.

Tottenham hafði vonast til að endurheimta Alderweireld í byrjun janúar en svo verður ekki.

Alderweireld missir því að minnsta kosti af næstu tíu leikjum Tottenham.
Athugasemdir
banner
banner