Leeds 1 - 0 Derby County
1-0 Chris Wood ('45 )
Rautt spjald: Bradley Johnson, Derby County ('89 )
1-0 Chris Wood ('45 )
Rautt spjald: Bradley Johnson, Derby County ('89 )
Leeds heldur áfram að gera góða hluti í ensku Championship-deildinni, en liðið mætti Derby County í eina leik kvöldsins í deildinni.
Leeds var sterkara liðið í leiknum og þeir komust sanngjarnt yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar Chris Wood skoraði með skalla.
Staðan var 1-0 í hálfleik og þannig var hún líka þegar dómarinn flautaði til leiksloka. 1-0 lokatölur á Elland Road og sanngjarn sigur Leeds staðreynd.
Leeds er eins og áður segir að gera góða hluti í Championship-deildinni, en þeir eru núna með 48 stig í þriðja sæti, sex stigum á eftir toppliði Brighton. Tapliðið í kvöld, Derby, er í sjöunda sæti deildarinnar með 40 stig.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir