Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 13. janúar 2017 11:21
Magnús Már Einarsson
Conte setur met - Stjóri mánaðarins í þriðja skipti í röð
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, stjóri Chelsea, hefur verið valinn stjóri desember mánaðar í ensku úrvaldseildinni.

Conte var einnig valinn stjóri mánaðarins í október og nóvember.

Með þessu kemst Ítalinn í sögubækurnar því engum stjóra hefur áður tekist að vera stjóri mánaðarins þrjá mánuði í röð.

Chelsea vann alla sex leiki sína í ensku úrvalsdeildinni í desember en toppliðið vann samtals þrettán leiki í röð áður en Tottenham náði að binda enda á sigurgönguna í byrjun árs.



Athugasemdir
banner