Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. janúar 2017 14:15
Magnús Már Einarsson
Klopp: Ég og Mourinho höfum sömu reiðina
Mynd: Getty Images
„Hann (Jose) er einn af þeim bestu," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, þegar hann var spurður út í kollega sinn Jose Mourinho hjá Manchester United.

Liverpool heimsækir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni klukkan 16:00 á sunnudaginn.

„Þetta er ekkert nýtt. Við höfum sömu reiðina inn í okkur og við viljum báðir fara út á völl og ná í úrslit," sagði Klopp.

„Við vorum klárir í síðasta leik (á Old Trafford) og við verðum klárir aftur núna."

„Ég held ekki að það að ég og Jose viljum vinna geti ekki gert gæfumuninn. Leikmennirnir verða að standa sig. Þannig horfi ég á þetta."

Athugasemdir
banner
banner
banner