Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 13. janúar 2017 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sky Sports 
Middlesbrough sendir fyrirspurn vegna Bojan
Bojan gæti verið á leið til Middlesbrough.
Bojan gæti verið á leið til Middlesbrough.
Mynd: Getty Images
Middlesbrough, sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni, hefur sent fyrirspurn til Stoke um möguleikann á að kaupa Bojan Krkic. Þetta segir í frétt hjá Sky Sports.

Bojan hefur ekki fengið að spila mikið fyrir Stoke undanfarið og er hann ekki sáttur við það. Talið er að Stoke vilji fá 12 milljónir punda fyrir hann.

West Brom, Las Palmas og Valencia hafa einnig sent fyrirspurnir á fyrstu 13 dögum janúargluggans og Aitor Karanka, stjóri Boro, hefur einnig áhuga á leikmanninum.

„Ég þekki Bojan, vegna þess að hann var í spænska landsliðinu. Hann er góður leikmaður, hann hefur spilað hjá AC Milan, Barcelona, Ajax, Roma, Stoke, þannig að hann er góður leikmaður," sagði Karanka um leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner