Jose Mourinho, stjóri Manchester United, fannst fyrri leikurinn gegn Liverpool á þessu tímabili vera góður.
Liðin gerðu markalaust jafntefli á Anfield í afar tíðindalitlum leik en margir urðu fyrir vonbrigðum með leikinn. Mourinho var spurður að því í dag hvort hann búist við betri leik þegar liðin mætast á Old Trafford á sunnudag.

„Sumir segja að 0-0 sé ekki góður leikur af því að það eru engin mörk. Það þýðir ekki að ég sé alltaf sammála því. Mér fannst þetta vera góður leikur," sagði Mourinho.
United hefur unnið níu leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni og Mourinho tjáði sig um flugið sem liðið hefur náð.
„Úrslitin eru betri. Ég hef breytt mörgum hlutum. Ég hafði minni tíma til þess áður. Núna hef ég aðeins meiri tíma," sagði Mourinho.
Athugasemdir