fös 13. janúar 2017 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: ESPN 
Mourinho: Veit ekki hvort Klopp sé eins rólegur og ég
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, segist vera heldur rólegri í skapi en kollegi sinn hjá Liverpool, Jurgen Klopp.

Man Utd og Liverpool mætast í stórleik helgarinnar á sunnudaginn, en eitt áhugaverðasta einvígi þessa leiks verður á hlíðarlínunni, á milli Mourinho og Klopp.

„Ég vil vinna eins og allir aðrir þjálfarar," sagði Mourinho á blaðamannafundi fyrir leikinn í dag. „Allir hafa sinn eigin persónuleika og sinn eigin þjálfarastíl, en við (Mourinho og Klopp) erum líklega með svipaða eiginleika."

„Ég er viss um að við höfum mismunandi eiginleika, eins og annað fólk og þjálfarar, en hann vill spila eins mikið og ég vill spila og hann verður jafnmikið hvattur áfram og ég."

„Ég veit samt ekki hvort hann sé jafn-rólegur og ég, en þetta er bara einn stórleikur til viðbótar á ferli okkar."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner