Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 13. janúar 2017 09:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ranieri reiðubúinn að selja Schlupp
Jeffrey Schlupp
Jeffrey Schlupp
Mynd: Getty Images
Jeffrey Schlupp, leikmaður Leicester City hefur beðið um að vera seldur frá félaginu og fær hann því framfylgt, komi gott tilboð í hann.

Leicester hafnaði níu milljón punda boði frá Crystal Palace í Schlupp í vikunni en hann hefur aðeins byrjar einn leik í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni.

„Ég er búinn að spjalla við hann, auðvitað er hann ekki ánægður með spiltímann sinn. Ég skil hann. Við verðum hins vegar að fá rétt tilboð í hann."

„Það er áhugi fyrir honum og hann vill fara, það er eðlilegt," sagði Claudio Ranieri, þjálfari Leicester um málið.

Schlupp er búinn að vera hjá Leicester síðan hann var 13 ára.
Athugasemdir
banner
banner
banner