Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 13. janúar 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Mirror 
Söfnuðu fyrir borðum með hundunum hans Sanchez
Alexis Sanchez.
Alexis Sanchez.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Arsenal vilja gera allt til þess að halda stjörnuleikmanninum Alexis Sanchez hjá félaginu. Á því er enginn vafi.

Sumir vilja meina að hundurinn sé besti vinur mannsins og Sanchez er svo sannarlega sammála þeirri ályktun.

Alexis á tvo hunda sem heita Atom og Humber en þeir eru í miklu uppáhaldi hjá honum. Hundarnir hans Sanchez eiga sína eigin Instagram-síðu og þá leika þeir í auglýsingu með honum.

Nú mun frægð þessara hunda ná yfir á Emirates-leikvanginn, heimavöll Arseanal, þar sem þar munu borðar hanga með þeim og Sanchez.

Stuðningsmannahópurinn REDaction Gooners settu upp styrktarsíðu fyrir borðunum og var peningurinn ekki lengi að safnast.

Smelltu hér til að skoða styrktarsíðuna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner