Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 13. janúar 2017 06:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Walmsley og Haukur þjálfa Tindastól í sumar (Staðfest)
Stephen Walmsley
Stephen Walmsley
Mynd: Tindastóll
Stephen Walmsley hefur verið ráðinn þjálfari Tindastóls sem mun leika í 2. deildinni í sumar eftir að hafa unnið 3. deildina síðasta sumar.

Áður var búið að ganga frá ráðningu Hauks Skúlasonar en saman munu þeir sjá um þjálfun liðsins á komandi tímabili.

Haukur Skúlason þjálfaði liðið ásamt Stefáni Arnari Ómarssyni á síðasta tímabili. Stefán Arnar flutti hins vegar til Svíþjóðar í haust og því hefur nú verið gegnið frá ráðningu á Walmsley sem mun starfa við hlið Hauks.

Stephen Walmsley var kjörinn besti leikmaður liðsins á síðasta ári en hann átti frábært tímabil með Tindastóli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner