Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 13. janúar 2018 14:32
Gunnar Logi Gylfason
Championship: Cardiff aftur á sigurbraut
Leikmenn Sunderland gátu ekki fagnað í dag
Leikmenn Sunderland gátu ekki fagnað í dag
Mynd: Getty Images
Cardiff City 4 - 0 Sunderland
1-0 Callum Paterson ('46 )
2-0 Joe Ralls ('55 )
3-0 Callum Paterson ('80 )
4-0 Anthony Pilkington ('90)
Rautt spjald: Didier Ibrahim N'Dong, Sunderland ('49)

Cardiff vann rétt í þessu stórsigur á Sunderland 4-0 í Wales í Championship-deildinni.

Markalaust var í hálfleik en heimamenn blésu til sóknar í seinni hálfleik og skoruðu fjögur mörk gegn engu gestanna.

Þetta var kærkominn sigur fyrir Walesverjana en þeir höfðu tapað síðustu fjórum leikjum sínum og komast í annað sæti deildarinnar, með 50 stig, en liðin fyrir neðan eiga leik inni á þá.

Gestirnir sitja sem fastast á botni deildarinnar með 22 stig.

Aron Einar Gunnarsson lék ekki með heimamönnum enda hefur hann verið meiddur undanfarið.
Athugasemdir
banner
banner