banner
   lau 13. janúar 2018 09:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Coquelin um Wenger: Ég mun alltaf vera honum þakklátur
Coquelin lék 105 deildarleiki fyrir Arsenal.
Coquelin lék 105 deildarleiki fyrir Arsenal.
Mynd: Getty Images
Frakkinn Francis Coquelin mun leika á Spáni næstu árin eftir að hafa skrifað undir samning sem gildir til ársins 2022 við Valencia á fimmtudaginn.

Coquelin sem kom ungur að árum til Arsenal er afar þakklátur knattspyrnustjóra Arsenal, Arsene Wenger.

„Ég mun alltaf vera honum þakklátur, hann gerði mig að þeim leikmanni sem ég er í dag. Ég mun alltaf virða hann fyrir það sem hann gerði fyrir mig."

„Ég er staddur á þeim stað sem ég er í dag þökk sé honum og því sem ég hef lagt á mig líka. Ef stjórinn þinn spilar þér ekki þá færðu ekki tækifæri til að sanna þig og hann er sá sem gaf mér tækifæri. Ég er mjög þakklátur fyrir það og óska honum (Wenger) alls hins besta," sagði Francis Coquelin að lokum.


Athugasemdir
banner
banner
banner